26 nóv. 2008Þátturinn NBA Action eða NBA tilþrif eins og hann kallast á okkar ástkæra og ylhýra móðurmáli hefur göngu sína á ný á skjám landsmanna á morgun. Þessi þáttur var gríðarlega vinsæll á sínum tíma og átti örugglega sinn þátt í auknum vinsældum á körfuboltanum. Þátturinn verður á dagskrá á Stöð 2 Sport á fimmtudagskvöldum og verður fyrsti þátturinn á morgun klukkan 19:30. Í þættinum eru bestu tilþrif vikunnar á undan, viðtöl og ýmislegt fleira skemmtilegt og fróðlegt úr NBA deildinni.