20 nóv. 2008Eins og sagt frá hér á síðunni á dögunum þá verða Stjörnuleikir KKÍ á Ásvöllum laugardaginn 13. desember. Ákveðið hefur verið að landsliðsþjálfararnir Sigurður Ingimundarson og Ágúst Björgvinsson velji sín landslið til að etja kappi við úrvalslið skipað erlendum og íslenskum leikmönnum í bland. Stefnt er að því að brydda upp á skemmtilegum uppákomum nýjungum í tengslum við leikina og er 3 stiga skotkeppnin ein þeirra en keppnin verður aðeins öðruvísi í ár. Troðkeppnin verður á sínum stað náist almennileg þátttaka og er áhugasömum bent á að senda póst á [p+]kki@kki.is[p-]kki@kki.is[slod-] Fleiri fréttir á næstu dögum, fylgist með.