18 nóv. 2008Ákveðið hefur verið að halda dómaranámskeið næstu helgi samhliða fjölliðamóti Minnibolta 11 ára drengja í Njarðvík og Minnibolta 10 ára stúlkna í Keflavík. Áætlað er að námskeiðið hefjist á föstudeginum um kl 17.00 og standi fram á kvöldið. Stefnt er að því að klára svo yfirferðina á laugardeginum í bóklega hlutanum og fara svo út í íþróttahús og dæma þar leiki eftir hádegi og taka þar verklega hluta námskeiðisins. Skráning er hafin á [p+]kki@kki.is[p-] kki@kki.is[slod-]. Vinsamlegast sendið nafn, fæðingardag ásamt GSM númeri, hemilisfangi og netfangi þegar þið skráið ykkur. Nánari dagskrá ætti að liggja fyrir í lok vikunnar.