17 nóv. 2008Nú loksins er búið að koma upp logo-safni aðildarfélaga KKÍ hér á síðunni og þar mun verða hægt að nálgast logo allra félaga í tvennskonar útgáfu, annars vegar hefðbundinni mynd og svo einnig í PDF útgáfu, sem oft er nauðsynlegt að hafa fyrir hverskyns prentun og þegar nota þarf merki viðkomandi félags í góðri upplausn. Það hefur sýnt sig að það fer oft mikil tími í að finna merki félaga þegar á þarf að halda og sú vinna fór fram í haust, meðal annars við útgáfu tímaritsins Karfan. Ennþá vantar einstaka merki nokkura félaga, en þeir sem eiga þau til mættu gjarnan senda þau inn á netfangið [p+]kki@kki.is[p-] kki@kki.is[slod-]. Hægt er að skoða skoða síðuna undir Félög / Leikmenn og þar neðst er linkurin á" Merki og Lógó félaga" eða með því að smella [v+]http://www.kki.is/logofelaga.asp [v-]hér[slod-].