17 nóv. 2008Sigmundur Már Herbertson dómari verður á ferð og flugi næstu tvær vikur en hann mun halda áfram að dæma Evrópuleiki fyrir FIBA Europe. Næstu tvö verkefni verða annarsvegar viðureign BC Star og Spartak Moscow í Eurocup kvenna en sá leikur fer fram í Eistlandi þann 21. nóvember. Meðdómari hans þá verður frá Finnlandi. Síðan bættist við í dag annað verkefni þann 26. nóvember en það er leikur í Meistaradeild kvenna sem fram fer í Frakklandi, viðureign Hainaut Basket gegn Jolly JBS Sibenik. Meðdómarar hans í þeim leik koma frá Englandi og Danmörku. Við óskum okkar manni góðs gengis í þessum tveim verkefnum.