14 nóv. 2008Í kvöld fara fram þrír leikir í 1. deild karla. Á Flúðum taka nýliðar UMFH á móti Val. KFÍ fær Laugdæli í heimsókn vestur til Ísafjarðar. Þessir leikir hefjast báðir kl 19.15. Haukamenn mæta svo Ármenningum kl 20.00 að Ásvöllum í Hafnarfirði þar sem Pétur Ingvarsson mun stýra liði Hauka, líkt og áður gegn Ármanni, en hann aðstoðaði Ármenninga í lok síðasta tímabils. Einn leikur er á dagskrá í 1. deild kvenna en þá eigast við Ármenningar og Njarðvíkingar kl 19.15 í Laugardalshöllinni. Þessi lið hafa mæst tvisvar sinnum áður í vetur og hafa liðin unnið sitthvorn leikinn. Á morgun er svo einn leikur í 1. deild karla en þá eigast við Höttur og Þór Þorlákshöfn á Egilsstöðum kl 15.00.