14 nóv. 2008Leikur Fjölnis og Snæfells í Iceland Express-deild kvenna hefur verið færður og mun nú fara fram á mánudagskvöld. Leikurinn átti upphaflega að fara fram á morgun laugardag en hefur verið fluttur um tvo daga og verður á mánudagskvöld í Íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi og hefst kl. 19:15. Er þetta lokaleikur 6. umferðar Iceland Express-deildar kvenna og afar mikilvægur báðum liðum þar sem þau sitja á botni Iceland Express-deildarinnar án stiga.