5 nóv. 2008Dómstóll KKÍ hefur úrskurðað í máli Ármanns gegn Njarðvík og KKÍ vegna leiks sem fór fram í Njarðvík þann 11. október síðastliðin. Dómsorð: Kröfu Glímufélags Ármanns þess efnis að leikur Njarðvíkur og Ármanns í 1. deild kvenna þann 11. október 2008 verði dæmdur ógildur og leikinn að nýju er hafnað. Varakröfu Glímufélags Ármanns þess efnis að dómaranefnd verði beðin um að taka meira tillit til 1. deildar kvenna þegar raðað er niður dómurum á leiki er vísað frá. Úrskurðinn má sjá í heild sinni [v+]http://www.kki.is/skjol/urskurdur_3_2008.pdf [v-]hérna[slod-].