1 nóv. 2008Tveimur leikjum er lokið sem fram fóru í dag. Í Iceland Express-deild kvenna höfðu Haukastelpur sigur á KR í Vesturbænum 72-53 en staðan í hálfleik var 25-24. Í 1.deild karla gerðu Hamarsmenn góða ferð austur á Egilsstaði og unnu Hött 71-113. Leik KFÍ og Vals var frestað í annað sinn og er settur á á morgun.