1 nóv. 2008Leik KFÍ og Vals í 1. deild karla hefur verið frestað á ný en leikurinn átti að fara fram kl. 17:00 í dag. Ekki er flugveður vestur og verður leiknum því frestað fram á morgundag og fer hann fram kl. 19:15 annað kvöld, sunnudag. Upphaflega átti leikurinn að fara fram á föstudagskvöldið en ekkert hefur verið flogið um helgina vestur. Ásamt þessu hefur leik KFÍ og Vals í unglingaflokki karla verið frestað og verður fundin ný dagstening strax eftir helgi.