1 nóv. 2008Fjórða umferð Iceland Express-deildar kvenna lýkur í dag með leik KR og Hauka. Hefst leikurinn kl. 16:00 í DHL-höllinni. KR-ingar eru í 6. sæti deildarinnar með 2 stig eftir þrjá leiki á meðan Haukar eru í 4.-5. sæti með 4 stig eftir jafnmarga leiki. Tveir leikir eru á dagskrá í 1. deild en það eru viðureignir Hattar og Hamars annars vegar og viðureign KFÍ og Vals hinsvegar. Leikur Hattar og Hamars hefst kl. 15:00 á meðan leikur KFÍ og Vals hefst kl. 17:00 en það er leikur sem var frestað í gærkvöldi vegna veðurs. Í 1. deild kvenna er einn leikur. Skallagrímur fær Ármenninga í heimsókn og hefst leikurinn kl. 16:00. Einnig er leikið í 2. deild karla og yngri flokkum um helgina.