24 okt. 2008Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild karla og 1.deild karla í kvöld. Í Kópavogi tapaði Breiðablik fyrir KR 72-108. Grindavík vann Tindastól 113-95 og í Stykkishólmi vann Snæfell Þór frá Akureyri með 88 stigum gegn 71. Í 1. deild gerðu Haukar góða ferð á Flúðir og lögðu Hrunamenn 102-86, Valsmenn unnu Ármann 80-77 og í Þorlákshöfn unnu Þórsarar lið Laugdæla 98-83.