24 okt. 2008Í gær fóru fram þrír leikir í Iceland Express-deild karla. Íslandsmeistarar Keflavíkur tóku á móti ÍRingum í Toyota Höllinni í Keflavík og höfðu heimamenn sigur 92-69. Nýliðar FSu unnu sannfærandi sigur á Skallagrím á Selfossi með 98 stigum gegn 56 og þá vann Njarðvík útisigur í Garðabænum á liði Stjörnunnar 77-87. Í kvöld fara svo fram 3 leikir en þeir hefjast allir kl 19.15 Breiðablik - KR · Smárinn, Kópavogi Snæfell - Þór, Akureyri · Fjárhúsið, Stykkishólmi Grindavík - Tindastóll · Röstin, Grindavík