20 okt. 2008Í kvöld fóru þrír leikir fram í Iceland Express deild karla og unnust þeir allir á útivelli. Í Njarðvík var grannaslagur þegar Grindavík mætti í heimsókn. Eftir jafnan fyrri hálfleik náðu gestir undirtökunum og unnu sigur 84:98. Í Borgarnesi var einnig grannaslagur þegar Snæfell var í heimsókn. Snæfell vann 62:94. Í Seljaskóla áttust ÍR og Stjarnan við og höfðu gestir betur í miklum spennuleik 81:82.