20 okt. 2008Um helgina fóru fram nokkrir leikir í Iceland Express-deildum karla og kvenna. Á föstudaginn voru þrír leikir á dagskrá hjá körlunum, en þá vann Keflavík - Þór Ak á heimavelli með 94 stigum gegn 70. Breiðablik - Skallagrímur fór 78-66 fyrir Breiðablik og Snæfell - Tindastóll fór 55-57 fyrir gestina frá Sauðárkrók. Á laugardaginn unnu síðan Hamars stelpur lið Kr-inga í Vesturbænum í Iceland Express-deild kvenna 65 - 76, Snæfell tapaði heima gegn Keflavík 57:90 og Grindavík vann Fjölni á útivelli 60:92. Á sunnudaginn vann Valur lið Hauka að Hlíðarenda 65-64.