20 okt. 2008Ákveðið var á formannafundi KKÍ sem haldinn var fyrir nokkur að halda miðaverði óbreyttu í vetur frá því í fyrra á alla leiki í Iceland Express-deildum karla og kvenna. Miðaverð verður því áfram 1.000 kr. fyrir fullorðna, 500 fyrir börn yngri en 15 ára og frítt er fyrir börn yngri en 5 ára. Þetta ætti að vera góð hvatning til allra um að fjölmenna á leiki hjá sínu félagi í vetur og skemmta sér yfir góðum körfuboltaleik. Aðgangseyrir rennur til þess félag sem spilar á heimavelli og því er um að ræða styrk til íþróttafélaganna í landinu.