16 okt. 2008Iceland Express deild karla hófst í kvöld með þremur leikjum og svo var einnig leikið í 1. deild karla. Nýliðar FSu byrjuðu vel í efstu deild þegar liðið lagði Njarðvík 103:78 á heimavelli. Í Grindavík var háspenna lífshætta þegar heimamenn höfðu sigur á Stjörnunni eftir framlengingu 110:109. Í DHL höllinni mættust Reykjavíkurliðin KR og ÍR og höfðu heimamenn betur 94:79 Í 1.deild karla höfðu Hamarsmenn betur gegn Ármanni í Laugardalshöll 78:94