13 okt. 2008Í dag kl 13:00 verður haldin kynningarfundur á Iceland Express-deildum karla og kvenna sem hefst á miðvikudaginn kemur. Fundurinn fer fram í salarkynnum íþróttahúss Smárans í Kópavogi á annarri hæð. Á fundinum verður farið yfir spá fyrirliða, þjálfara og forsvarsmanna liðanna og deildin kynnt. Fulltrúar allra liða verða á staðnum í karla og kvenna deildum, þjálfarar og leikmenn. Frétta- og blaðamenn mæta einnig til að taka púlsin á liðunum og fulltrúar Iceland Express mæta einnig og kynna samstarfið við KKÍ. KKÍ mun afhenda keppnisgögn fyrir veturinn, eins og fána, boli og fleira til forráðamanna liðanna. Boðið verður upp á léttar veitingar í boði Iceland Express.