12 okt. 2008Keflavík tryggði sér sigur í báðum leikjum dagsins í Meistarar Meistaranna 2008. Keflavík mætti Grindavík í fyrri leik dagsins hjá konunum og svo áttust við lið Keflavíur og Snæfells hjá körlunum. Íslandsmeistarar Keflvaíkur unnu Bikarmeistar Grindavíkur 73:68. Hjá körlunum höfðu íslandsmeistarnir í Keflavík 4 stiga sigur á Bikarmeisturum Snæfells. Meistarar Meistaranna eru ávalt síðasti liðurinn á hverju ári fyrir íslandsmótið en það hefst komandi viku á miðvikudaginn hjá konunum og fimmtudaginn hjá körlunum. Í fyrstu umferð mætast eftirfarandi lið: Konur: Fjölnir - Valur Grindavík - KR Hamar - Snæfell Keflavík - Haukar Karlar: FSu - UMFN Grindavík - Stjarnan KR - ÍR Breiðablik - Skallagrímur Snæfell - Tindastóll Keflavík - Þór Ak.