11 okt. 2008Sunnudaginn 12. október fer Meistarakeppni karla og kvenna fram í Toyotahöllinni í Keflavík. Það eru Íslandsmeistarar og bikarmeistarar frá síðasta keppnistímabili sem mætast í Meistarakeppni KKÍ ár hvert. Allt frá árinu 1995 hefur KKÍ styrkt ákveðinn samtök sem þurfa á fjárhagsaðtoð að halda. Í ár varð BUGL, barna og unglingageðdeild Landspítalans fyrir valinu. BUGL fær allan aðgangseyrir sem og þann ágóða sem safnast frá fyrirtækjum sem kaupa lógó í leikskrá fyrir leikina. Styrkþegar KKÍ frá upphafi: Styrkþegar meistarakeppni KKÍ 1995 Samtök krabbameinssjúkra barna 1996 Jafningjafræðsla framhaldsskólanna 1997 Neistinn - styrktarfélag hjartveikra barna 1998 FSBU - foreldrafélag sykursjúkra barna 1999 LAUF - landssamtök áhugafólks um flogaveiki 2000 Samtök barna með tourett heilkenni 2001 PKU - Samtök foreldra barna með efnaskiptasjúkdóma 2002 Foreldrafélag geðsjúkra barna og unglinga 2003 Einstök börn 2004 MND-félagið 2005 Foreldrafélag barna með axlaklemmu 2006 Foreldra- og styrktarfélag heyrnardaufra 2007 SÁÁ-Stuðningur við börn alkóhólista 2008 BUGL- Barna og Unglingageðdeild Landspítalans Dagskrá Meistarakeppni KKÍ 2008: 16:30 Keflavík - Grindavík Meistarakeppni kvenna 19:15 Keflavík - Snæfell Meistarakeppni karla Aðgangseyrir: 16 ára og eldri 1000 6-15ára 500 5 ára og yngri Frítt Sögu Meistarakeppni KKÍ má finna [v+]http://www.kki.is/greinar.asp?adgerd=ein&id=83[v-]hér[slod-] Fyllum Toyotahöllina á morgun og sláum tvær flugur í einu höggi, sjáum frábæra leiki og styrkjum gott málefni í leiðinni.