9 okt. 2008Nú er keppni hafin á Íslandsmótinu í körfuknattleik í yngri flokkum og fyrr í vikunni hófst keppni í Drengjaflokki. Niðurraðanir vetrarins í Iceland Express-deild karla, Iceland Express-deild kvenna, 1. deild karla, 1. deild kvenna, 2. deild karla, Unglingaflokki karla, Unglingaflokki kvenna og í Drengjaflokki eru klárar og er hægt að nálgast þær á [v+]http://www.kki.is/mot/[v-]mótasíðunni[slod-]. Búið er að gefa út endurbætt keppnisdagatal í yngri flokkunum en vegna mikillar skráningar var ákveðið að bæta við keppni í 2. deild í 7. flokki, 8. flokki og 9. flokki drengja. Ekki var gert ráð fyrir því upphaflega en nú hafa keppnishelgum verið bætt við.