8 okt. 2008Sigmundur Már Herbertsson hefur verið útnefndur af FIBA til að dæma tvo leiki sem fram fara á næstunni í evrópukeppnum kara og kvenna. Þann 15. október mun hann dæma í Riga, Lettlandi leik í Euroleague kvenna en það verður viðureign TTT Riga gegn Euroleasing frá Ungverjalandi. Í þeim leik verða þær Kati Nynas frá Finnlandi og Petra Kremer frá Þýskalandi meðdómarar hans. Seinni leikurinn er viðureign í Eurocup karla, leikur Eiffel Towers Den Bosch frá Hollandi gegn Körmend frá Ungverjalandi en leikið er í Hertogenbosch í Hollandi. Sá leikur er seinni leikur þessara liða um að komast í riðlakeppnina í Eurocup. Meðdómarar Sigmundar verða Gianluca Mattioli frá Ítalíu og Neil Wilkinson frá Englandi. Við óskum Sigmundi alls hins besta í þessum verkefnum og gleðjumst yfir því að íslenski dómarar skuli fá svona krefjandi verkefni frá FIBA.