4 okt. 2008Það verða lið Grindavíkur og KR sem leika til úrslita í Powerade-móti karla en þau slógu út andstæðinga sína í kvöld. Báðir leikir kvöldsins voru hörkuleikir og ljóst að liðin eru að koma ágætlega undan sumri. Fyrsti leikur kvöldsins var viðureign Keflavíkur og KR. Eftir hörkuleik hafði KR betur 86-96. Seinni leikurinn var milli Grindavíkur og Snæfells. Þar vann Grindavík nauman sigur 71-74 og mæta því KR í úrslitum. Úrslitaleikurinn verður á sunnudag í Laugardalshöll og hefst leikurinn kl. 16:30.