2 okt. 2008Í kvöld fara fram undanúrslit kvenna í Powerade-bikarnum og að gefnu tilefni skal taka það skýrt fram að báðir leikirnir í dag og á morgun fara fram í Laugardalshöllinni. Því miður varð smávægileg bilun í tölvukerfi KKÍ þannig að leikirnir stilltust á hús heimaliðanna sem eftir eru í keppninni og það stóð í einhvern tíma og birtist meðal annars í morgun í Morgunblaðinu þar sem röng hús eru tilgreind sem leikstaðir í kvöld. Sá háttur hefur verið á undanfarin 3 ár að undanúrslitin fari fram í Laugardalshöllinni og það mun halda áfram. Leikirnir í dag: Undanúrslit kvenna: kl 19:00 · Keflavík - Haukar kl 21:00 · KR - Grindavík Leikirnir á morgun: Undanúrslit karla: kl 19:00 · Keflavík - KR kl 21:00 · Snæfell - Grindavík