2 okt. 2008Þriðja árið í röð heldur unglingaráð körfuknattleiksdeildar KR mót fyrir krakka á aldrinum 6-10 ára í samstarfi við Eymundsson. Mótið verður haldið 11.-12. október í ár, en það hefur tekist einstaklega vel í síðustu tvö skipti. Skráning stendur yfir til mánudagsins 6. október á netfanginu [p+]benedikt@kr.is[p-] benedikt@kr.is[slod-].eða í síma 510-5312. Mótsgjaldið er 2.000 kr. á hvern leikmann. Ekki þarf að skrá hvern og einn iðkanda heldur þarf að skrá lið og tiltaka fjölda í liðinu. Það eru þeir Benedikt Guðmundsson og Ingi Þór Steinþórsson, þjálfarar meistaraflokks KR sem fara með mótsstjórn. Fyrirkomulagið er þannig að leikið er í 2x12 mínútur og er leiktíminn ekkert stöðvaður. Leikið er í báðum sölum DHL-Hallarinnar og er dómari á hverjum velli. Hvert lið fær að lágmarki fjóra leiki í mótinu. Eftir mótið verður síðan verðlaunaafhending og fá allir verðlaunapening og gjafabréf í Eymundsson. Að auki verður tekin mynd af hverju liði sem birtist á heimasíðu KR. Nánar um mótið er að finna á [v+]http://www.kr.is/karfa / [v-]www.kr.is/karfa[slod-].