1 okt. 2008Í kvöld lauk síðustu leikjum 8-liða úrslita Poweradebikars karla og ljóst hvaða félög mætast í undanúrslitum. Undanúrslit í Poweradebikar kvenna fara fram fimmtudagskvöldið 2. október í Laugardalshöll. Fyrri viðureign kvöldsins er leikur Keflavík og Haukar og hefst leikurinn klukkan 19:00 Klukkan 21:00 mætast svo KR og Grindavík. Undanúrslit í Poweradebikar karla fara fram föstudaginn 3. október í Laugardalshöll. Klukkan 19:00 mætast Keflavík og KR Seinni leikur kvöldsins er viðureign Snæfells og Grindavíkur og hefst leikurinn klukkan 21:00