30 sep. 2008Í gærkvöldi fóru fram leikir í Poweradebikar karla og kvenna þar sem meðal annars Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í undanúrslitum Poweradebikars kvenna. Undanúrslit í Poweradebikar kvenna fara fram í laugardalshöll fimmtudaginn 2. október. Keflavík mætir Haukum og KR mætir Grindavík. Þórsarar tryggðu sér sæti í 8 liða úrslitum Poweradebikars karla með því að sigra Stjörnuna á heimavelli. Njarðvík komst einnig í 8 liða úrslit Poweradebikars karla með því að leggja Breiðablik af velli í Ljónagryfjunni. 8-liða úrslit í Poweradebikar karla hefjast svo í kvöld, þriðjudaginn 30. september, þegar ÍR tekur á móti KR í Seljaskóla og Snæfell fær Tindastól í heimsókn. Báðir leikir hefjast klukkan 19:15