27 sep. 2008KR varð á fimmtudaginn Reykjavíkurmeistarar karla 2008 með því að sigra ÍR í úrslitaleik en leikurinn fór fram í DHL-Höllinni. Lokatölur leiksins urðu 97-56. Nokkuð vantaði upp á fullskipaðan leikmannahóp á báða bóga en meiðsl hafa verið í herbúðum beggja liða. Það má hinsvegar búast við þessum tveim liðum feikisterkum í vetur þegar Iceland-Express deildin fer af stað.