25 sep. 2008Það verða KR og ÍR sem mætast í úrslitaleiknum í Reykjavíkurmótinu í ár en leikurinn fer fram í kvöld í DHL-Höllinni í kvöld og hefst kl 19:15. Bæði lið hafa unnið Fjölni og Val og því er um hreinan úrslitaleik að ræða. Takist KR að sigra verður það í 10. skiptið í röð sem þeir verða Reykjavíkurmeistarar, en það má búast við hörku leik þessara úrvalsdeildarfélaga. Fjölnir og Valur mætast á sama tíma í leik um þriðja sætið í Grafarvogi og hefst sá leikur einnig kl 19:15. Úrslit úr leikjum mótsins: KR 90 - Fjölnir 78 ÍR 86 - Valur 68 IR 90 - Fjölnir 70 Valur 67 - KR 101