19 sep. 2008Því miður þá veiktist landsliðsmaðurinn Jakob Örn Sigurðarson eftir leikinn gegn Svartfjallalandi og fór því ekki út með liðinu en leikið er gegn Austurríki á morgun. Leikurinn hefst um 18:20 að íslenskum tíma. Það er skarð fyrir skildi því Jakob hefur spilað mjög vel í landsleikjum sínum á móti Austurríki í gegnum tíðina. Jakob hefur spilað fjóra A-landsleiki á móti Austurríki og hefur skorað í þeim 55 stig eða 13,8 að meðaltali í leik. Fjórir leikmenn íslenska liðsins sem mætir Austurríki á laugardaginn hefur skorað yfir tíu stig að meðaltali í leik á móti Austurríkismönnum. Jón Arnór Stefánsson er ekki einn af þeim því hann mun spila sinn fyrsta landsleik á móti Austurríki um helgina. Jakob átti meðal annars stórleik á móti Austurríki í Laugardalshöllinni í fyrra þegar hann skoraði 21 stig, tók 7 fráköst og gaf 10 stoðsendingar án þess að tapa einum einasta bolta. Jakob hitti úr 7 af 12 skotum sínum í leiknum þar af 5 af 8 fyrir utan þriggja stiga línuna. Á listanum yfir tíu stigahæstu landsleiki Jakobs á ferlinum eru þrír leikir á móti Austurríki því hann skoraði einnig 13 stig í tveimur vináttuleikjum með aðeins þriggja daga millibili sumarið 2004. Ísland vann seinni leikinn. Hæsta meðalskor gegn Austurríki af núverandi landsliðsmönnum: Jakob Örn Sigurðarson 13,8 stig í leik (4 leikir, 55 stig) Logi Gunnarsson 12,0 stig í leik (2 leikir, 24 stig) Magnús Þór Gunnarsson 11,5 stig í leik (4 leikir, 46 stig) Páll Axel Vilbergsson 10,3 stig í leik (4 leikir, 41 stig) Sigurður Þorvaldsson 8,0 stig í leik (2 leikir, 16 stig) Helgi Már Magnússon 6,5 stig í leik (2 leikir, 13 stig)