18 sep. 2008Jón Arnór Stefánsson átti mjög góðan leik á móti Svartfellingum í Laugardalshöllinni í gærkvöldi. Jón Arnór skoraði 20 stig og gaf 4 stoðsendingar og var stigahæsti leikmaður vallarins. Jón Arnór hefur aðeins skorað meira í þremur landsleikjum sínum en þeir voru allir á útivelli. Hann hefur því aldrei skorað fleiri stig í heimaleik en í leiknum í gær. Jón Arnór hafði mest áður skorað 17 stig í heimaleik en það var í leik á móti Svíum á Norðurlandamótinu í Keflavík 2. ágúst 2000. Þetta var aðeins annar landsleikur Jóns Arnórs með A-liðinu. Hann hitti þá úr 6 af 9 skotum sínum og var að auki með 4 fráköst og 2 stoðsendingar þrátt fyrir að spila aðeins í 22 mínútur í leiknum. Jón Arnór hefur átt sína tvo bestu stigaleiki í Laugardalshöllinni í síðustu tveimur heimaleikjum en hann skoraði 14 stig í sigurleiknum á móti Dönum fyrir rúmri viku. Fyrir þessa leiki hafði Jón Arnór mest skorað 14 stig í Laugardalshöllinni í leik á móti Slóveníu 29. nóvember 2000. Eftir leikinn á móti Svartfjallalandi hefur Jón Arnór skorað 14,3 stig að meðaltali í leik í Evrópukeppninni og er sem stendur 14. sæti yfir stigahæstu leikmenn b-deildarinnar. Jón Arnór er líka inn á lista yfir flestar stoðsendingar en hann er þar í 16. sæti með 2,7 að meðaltali í leik. Jón Arnór er líka í 11. sæti í vítanýtingu en hann hefur nýtt 9 af 11 víti sín sem gerir 81,8 prósent vítanýtingu. Flest stig Jóns Arnórs í heimaleik: 20 stig - gegn Svartfjallalandi í Laugardalshöll 17.9.2008 17 stig - gegn Svíþjóð í Keflavík 2.8.2000 14 stig - gegn Slóveníu í Laugardalshöll 29.11.2000 14 stig - gegn Danmörku í Laugardalshöll 10.9.2008 13 stig - gegn Úkraínu í Laugardalshöll 22.11.2000 13 stig - gegn Rúmeníu í Keflavík 19.9.2004 12 stig - gegn Finnlandi í Laugardalshöll 22.8.2001 11 stig - gegn Makedóníu í Laugardalshöll 24.1.2001+