17 sep. 2008Logi Gunnarsson hefur fundið sig vel í tveimur leikjum sínum á móti löndum gömlu Júgóslavíu en hann hefur skorað 21,0 stig að meðaltali í þeim. Logi skoraði 29 stig á 23 mínútum á móti Slóveníu í Laugardalshöllinni 29. nóvember 2000 og 13 stig á 22 mínútum á móti Makedóníu á sama stað tveimur mánuðum síðar eða 24. janúar 2001. Logi nær vonandi að halda góðri hittni sinni áfram þegar íslenska karlalandsliðið tekur á móti Svartfellingum í Laugardalshöllinni í kvöld en leikur hefst klukkan 19.15. Logi skoraði 29 stig á aðeins 23 mínútum eftir að hafa komið inn af bekknum í leik á móti Slóveníu í milliriðli Evrópukeppninnar í Laugardalshöllinni 29. nóvember 2000. Logi nýtti 10 af 15 skotum sínum í leiknum þar af 2 af 4 skotum fyrir utan þriggja stiga línuna. Logi nýtti síðan öll sjö vítin sín í leiknum. Þetta var aðeins sjöundi landsleikur Loga og hann hefur síðan aðeins einu sinni náð að skora fleiri stig í einum leik síðan þá. Logi stóð sig einnig vel á móti Makedóníu tveimur mánuðum síðar þegar Makedónarnir heimsóttu Laugardalshöllina 24. janúar 2001. Logi var þá kominn í byrjunarliðið og skoraði 13 stig á 22 mínútum í leiknum. Hann hitti úr 4 af 8 skotum sínum og öllum fjórum vítunum sínum. Logi hefur annars oftast fundið körfurnar í Laugardalshöllinni þar sem hann hefur skorað 13,9 stig að meðaltali í átta landsleikjum. Logi er með hæsta meðalskorið í Höllinni af núverandi leikmönnum landsliðsins en Jón Arnór Stefánsson kemur næstur með 12,2 stig að meðaltali í sex leikjum.