16 sep. 2008Strákarnir í landsliðinu mættu í gær á Select við Smáralindina og árituðu plaköt og gáfu landsliðstreyjur til þeirra sem mættu. Powerade og Freyja gáfu sá svo um að metta mannskapinn og almenn ánægja var með þetta uppátæki en það mættu um 250 manns á svæðið. Landsliðið mun svo árita plaköt eftir leikinn á morgun gegn Svartfjallalandi en leikurinn er kl 19:15 í Laugardalshöll. Því er um að gera að mæta á leikinn og næla sér svo í áritað plakat á eftir.