15 sep. 2008KKÍ heldur þjálfaranámskeið fyrir þjálfara yngri flokka á miðvikudaginn kemur, 17. september í íþróttamiðstöðinni Laugardal. Benedikt Guðmundsson sér um námskeiðið en hann er þjálfari meistarflokks KR og hefur þjálfað yngrilandslið KKÍ í gegnum tíðina. Á námskeiðinu verður meðal annars farið inn á afreksþjálfun og hvernig á að hlúa að efnilegum leikmönnum. Námskeiðið hefst 17:00 og er opið öllum sem vilja endurgjaldslaust. Eftir námskeiðið er svo hægt að fara á landsleikinn Ísland - Svartfjallaland sem hefst kl 19:15 í Laugardalshöllinni. Skráning er hafin og hún skal sendast á netfangið [p+]kristinn@kki.is[p-] kristinn@kki.is[slod-].