15 sep. 2008Undirbúningurinn er hafinn fyrir leikinn gegn Svartfjallalandi sem fram fer á miðvikudaginn klukkan 19:15 í Laugardalshöll. Landsliðsmennirnir verða í Select sjoppunni sem er við Smáralindina á milli klukkan 17:00 og 19:00 í dag til að árita og gefa plaköt ásamt því sem nokkrir heppnir gestir fá landsliðstreyju. Vífilfell og Freyja verða á staðnum og fá allir Powerade og Hrís sem koma og heilsa upp á landsliðsmennina.