12 sep. 2008Þeir félagar Páll Axel Vilbergsson og Logi Gunnarsson settu báðir 2 þrista niður í leiknum gegn Danmörku á miðvikudaginn og fóru því báðir úr 99 skoruðum þristum í 101 þriggja stiga körfur fyrir landsliðið. Íslenska liðið fór í morgun út til Hollands en leikið er gegn Hollendingum á morgun kl 17:30 að íslenskum tíma og það verður hægt að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu á [v+]http://www.fibaeurope.com/cid_KNce8jInH7Qj1EsyH5rjn2.roundID_6327.compID_qMRZdYCZI6EoANOrUf9le2.html [v-]FIBAeurope.com[slod-] á netinu. Miðasala er hafin á næsta heimaleik, en sá leikur er gegn Svartfjallalandi í Höllinni kl 19:15 á miðvikudaginn kemur. Hægt er að kaupa miða í forsölu á 1.500 kr. [v+]http://midi.is/ithrottir/1/5303/ [v-]hér á midi.is[slod-] og svo einnig á 1.700 kr. á leikdag í Höllinni. Það var frábær stemmning á pöllunum í síðasta leik gegn Dönum og Fannar Ólafsson sagði í viðtali við karfan.is að það hefði skilað sér til þeirra inn á völlinn sá stuðningur sem landsliðsmennirnir fengu. Því hvetjum við alla til að mæta á leikinn og styðja strákana okkar í næsta leik sem verður án efa frábær skemmtun eins og síðasti leikur var. Lið Svartfjallalands er feiki sterkt og við erum að spila við þá í fyrsta sinn.