11 sep. 2008Sigmundur Már Herbertsson körfuknattleiksdómari hefur fengið annað verkefni frá Fiba Europe. Að þessu sinni á hann að dæma leik Finnlands og Ítalíu í A-deild Evrópukeppni karla á laugardag. Er þetta annar leikurinn sem hann dæmir í A-deildinni nú í haust en um síðustu helgi dæmdi hann leik Bretlands og Tékklands í O2-íþróttahöllinni í London. Meðdómarar Sigmundar verða þeir Juan Carlos Garcia Gonzalez frá Spáni og Oskars Lucis frá Lettlandi.