11 sep. 2008Helena Sverrisdóttir bætti í gær rúmlega tíu ára met Önnu Dísar Sveinbjörnsdóttur þegar hún varð yngsta körfuboltakona Íslands til þess að ná því að leika 30 A-landsleiki. Helena bættti metið rúmt ár en Anna Dís var 21 árs, sjö mánaða og 3 daga þegar hún lék sinn 30. og síðasta landsleik á Promotion Cup í Austurríki sumarið 1998. Helena var 20 ára, fimm mánaða og 30 daga gömul í gær þegar íslenska kvennalandsliðið mætti Svartfjallalandi í fimmta og síðasta leik sínum í Evrópukeppninni í haust. Helena er einnig yngsta landsliðskona Íslands frá upphafi en hún var aðeins 14 ára og 9 mánaða þegar hún lék sinn fyrsta A-landsleik á móti Englandi á móti í Lúxemborg 27. desember 2002. Helena skoraði ekki í sínum fyrstu þremur landsleikjum en skoraði síðan 22 stig í þeim fjórða sem var á móti Noregi á Norðurlandamóti einu og hálfu ári síðar. Helena er þegar komin upp í 3. sæti yfir stigahæstu leikmenn A-landsliðs kvenna frá upphafi. Helena hefur skorað 495 stig í leikjunum 30 eða 16,5 að meðaltali í leik. Hana vantar 108 stig til að ná Birnu Valgarðsdóttur í 2. sætinu og 264 stig til að jafna met Önnu Maríu Sveinsdóttur sem skoraði 749 stig í sínum 60 landsleikjum en það gera 12,7 stig að meðaltali í leik. Anna Dís Sveinbjörnsdóttir lék 30 landsleiki á árunum 199-1998 en lék engan landsleik eftir að hún fór til Bandaríkjanna og lagði stund á nám við Converse -skólann. Anna Dís kláraði námið 2002 og kom ekki aftur heima eftir það. Hún hætti í körfunni alltof snemma en í sínum 30 landsleikjum þá skoraði hún 225 stig eða 7,5 að meðaltali í leik. Það hafa aðeins ellefu landsliðskonur skorað fleiri stig að meðaltali fyrir A-landsliðið. Yngstu landsliðskonur til þess að leika 30 A-landsleiki: 20 ára, 5 mánaða og 30 daga - Helena Sverrisdóttir (á móti Svartfjallalandi í Bijelo Polje 2008) 21 árs, 7 mánaða og 3 daga - Anna Dís Sveinbjörnsdóttir (á móti Kýpur í Austurríki 1998) 23 ára, 7 mánaða og 15 daga - Hildur Sigurðardóttir (á móti Englandi á Ásvöllum 2005) 23 ára, 11 mánaða og 28 daga - Helga Þorvaldsdóttir (á móti Danmörku í Bergen 2000) 24 ára og 2 daga - Linda Stefánsdóttir (á móti Albaníu á Möltu 1996) 24 ára, 1 mánaða og 16 daga - Alda Leif Jónsdóttir (á móti Möltu á Möltu 2003) 25 ára, 1 mánaða og 7 daga - Guðbjörg Norðfjörð (á móti Írlandi í Dublin 1997) 25 ára, 2 mánaða og 16 daga - Erla Þorsteinsdóttir (á móti Noregi í DHL-Höllinni 2003) 25 ára, 3 mánaða og 16 daga - Birna Valgarðsdóttir (á móti Írlandi í Lúxemborg 2001) 25 ára, 6 mánaða og 10 daga - Anna María Sveinsdóttir (á móti Möltu í Lúxemborg 1995) Landsliðsferill Helenu Sverrisdóttur 2002-2008: 2002 3 leikir - 0 stig 2004 6 leikir - 102 stig (17,0 í leik) 2005 6 leikir - 92 stig (15,3 í leik) 2006 3 leikir - 53 stig (17,7 í leik) 2007 3 leikir - 63 stig (21,0 í leik) 2008 9 leikir - 185 stig (20,6 í leik)