10 sep. 2008Íslenska landsliðið hefur æft af krafti að undanförnu fyrir leikinn gegn Dönum og hafa margar æfingarnar verið í Laugardalshöllinni. Strákarnir tóku góða æfingu í gær og er undirbúningur fyrir leikinn að vera klár. Flautað verður til leiks í kvöld kl. 20:45 og þá má reikna með hörku leik en síðast þegar þessi lið mættust unnu Danir afar nauman sigur eða með aðeins einu stigi 82-81 á norðurlandamótinu sem fór fram í Finnlandi árið 2006.