
9 sep. 2008KKÍ hélt blaðamannafund í gær og kynnti komandi landsliðsverkefni íslenska karlalandsliðsins. Á fundinn mættu þjálfarar liðsins ásamt leikmönnum og formanni KKÍ og héldu þeir stutta kynningu á verkefninu og svöruðu spurningum fréttamanna. Sigurður Ingimundarsson, þjálfari liðsins sagði að það yrði mikið kapp lagt á að ná sigri í fyrsta leiknum á morgun gegn Dönum sem fer fram í Laugardalshöllinni, og það væri því mikilvægt að fólk mæti á morgun og styðji við bakið á liðinu. Riðillinn okkar er feikisterkur og jafn og því skiptir stuðningur áhorfenda í stúkunni miklu máli fyrir strákanna. Vel var mætt á fundinn og mættu allir helstu fjölmiðlarnir og spurðu þjálfara og leikmenn spjörunum úr eftir fundinn. VIð minnum á að miðasala er í fullum gangi á midi.is og hægt er að kaupa miða [v+]http://midi.is/ithrottir/1/5303/ [v-]hérna[slod-].


