8 sep. 2008Í dag verður blaðamannafndur þar sem næsta landsliðsverkefni sambandsins verður kynnt en íslenska karlalandsliðið hefur leik í B-deild Evrópukeppninnar 2008-2009. Fyrsti leikurinn er á miðvikudaginn þann 10. september hér heima gegn Dönum í Laugardalshöll. Á fundinum mun formaður KKÍ, framkvæmdastjóri KKÍ, landsliðsþjálfarar og leikmenn mæta og sitja fyrir svörum og halda stutta kynningu á þessu verkefni. Hefst fundurinn kl. 14:00 í íþróttamiðstöð ÍSÍ í Laugardal, 3. hæð. Léttar veitingar verða í boði fyrir fundargesti.