6 sep. 2008Hildur Sigurðardóttir leikur tímamótalandsleik í Dublin í dag þegar A-landslið kvenna mætir Írum í b-deild Evrópukeppninnar. Þetta verður sextugasti A-landsleikur hennar og er hún þriðja íslenska konan sem nær að spila svo marga leiki fyrir A-landslið kvenna. Hildur nær með þessu Önnu Maríu Sveinsdóttur en eftir leikinn eru þær jafnar í 2. til 3. sæti á listanum yfir flesta landsleiki frá upphafi. Anna María var einmitt fyrsta íslenska konan til þess að spila sextíu A-landsleiki þegar hún hjálpaði íslenska liðinu til að vinna Promotion Cup 31. júlí 2004. Hildur lék sinn fyrsta landsleik á Spuerkess-æfingamótinu í Lúxemborg 7. maí 1999. Mótherjarnir voru heimakonur í Lúxemborg og íslenska liðið vann 59-54 sigur í leiknum. Hildur náði ekki að skora í leiknum en skoraði sín fyrstu landsliðsstig tveimur dögum síðar í leik á móti Slóveníu. Hildur hefur aðeins misst af einum landsleik frá því að hún lék sinn fyrsta landsleik fyrir rúmum níu árum. Hildur missti af æfingaleik á móti Englandi 29. desember 2004 eftir að hafa meiðst í æfingaleik gegn Englandi kvöldið áður. Hildur hafði þá leikið 40 landsleiki í röð og hefur nú leikið alla 19 landsleiki Íslands síðan. Hildur hefur skorað 321 stig í 59 landsleikjum eða 5,4 stig að meðaltali í leik. Hún skoraði mest 22 stig í leik á móti Englandi í Keflavík 28. maí 2005 en alls á Hildur ellefu landsleiki að baki þar sem hún hefur skorað tíu stig eða meira. Hildur hefur alls mætt landsliðum 17 þjóða á sínum ferli og spilað landsleiki í 18 íþróttahúsum. Það vekur kannski nokkra athygli að hún hefur leikið flest landsleiki í smáríkinu Andorra eða alls 13 landsleiki á tveimur Prommotion-mótum (2002, 2004) og einum Smáþjóðaleikum (2005). Hildur hefur leikið sína 59 landsleiki fyrir alls sjö landsliðsþjálfara. Óskar Kristjánsson valdi hana fyrst í landsliðið á sínum tíma en hún hefur spilað flesta leiki fyrir Ívar Ásgrímsson eða nítján. Leikurinn í dag verður síðan áttundi leikur hennar undir stjórn Ágústar Björgvinssonar. Tímamótalandsleikir Hildar Sigurðardóttur 1999-2008: 1. leikur ... á móti Lúxemborg í Lúxemborg 7.maí 1999 10. leikur ... á móti Noregi í Bergen 13. ágúst 2000 20. leikur ... á móti Svíþjóð í Lúxemborg 28. desember 2002 25. leikur ... á móti Möltu á Möltu 3. júní 2003 30. leikur ... á móti Englandi á Ásvöllum 30. maí 2004 40. leikur ... á móti Englandi í Nottingham 29. desember 2004 50. leikur ... á móti Hollandi á Ásvöllum 1. september 2007 60. leikur ... á móti Írlandi í Dublin 6. september 2008 Landsliðskonur með 60 A-landsleiki fyrir Ísland: : Birna Valgarðsdóttir 68 leikir - lék sinn 60. landsleik á móti Englandi í DHL-Höllinni 20. maí 2005. Birna skoraði 10 stig í leiknum. Anna María Sveinsdóttir 60 leikir - lék sinn 60. og síðasta landsleik á móti Lúxemborg í Andorra 31. júlí 2004. Anna María skoraði 17 stig í leiknum sem var úrslitaleikur á Promotion Cup þar sem íslenska liðið vann góðan sigur. Landsliðsferill Hildar Sigurðardóttur 1999-2008, ár eftir ár: 1999 3 leikir / 3 stig - 1,0 stig í leik 2000 7 leikir / 3 stig - 0,4 stig í leik 2001 3 leikir / 22 stig - 7,3 stig í leik 2002 8 leikir / 44 stig - 5,5 stig í leik 2003 6 leikir / 33 stig - 5,5 stig í leik 2004 13 leikir / 101 stig - 7,8 stig í leik 2005 6 leikir / 46 stig - 7,7 stig í leik 2006 3 leikir / 14 stig - 4,7 stig í leik 2007 3 leikir / 21 stig - 7,0 stig í leik 2008 7 leikir / 34 stig - 4,9 stig í leik Landsliðsferill Hildar Sigurðardóttur 1999-2008, tegund leikja: Leikir á Spuerkess-Vináttumóti 12 leikir Leikir á Norðurlandamóti 12 leikir Vináttulandsleikir 11 leikir Leikir á Promotion Cup 9 leikir Leikir í b-deild Evrópukeppnionnar 9 leikir Leikir á Smáþjóðaleikum 6 leikir Landsliðsferill Hildar Sigurðardóttur 1999-2008, mótherjar: Noregur 9 leikir England 8 leikir Lúxemborg 6 leikir Holland 5 leikir Malta 4 leikir Svíþjóð 4 leikir Andorra 3 leikir Danmörk 3 leikir Finnland 3 leikir Írland 3 leikir Albanía 2 leikir Slóvenía 2 leikir Sviss 2 leikir Kýpur 2 leikir Lúxemburg 1 leikir Skotland 1 leikir Aserbaídsjan 1 leikir