5 sep. 2008Það eru ekki bara íslensku landsliðin sem eru á ferðinni þessa dagana í tengslum við evrópukeppnina en Sigmundur Már Herbertsson hefur fengið verkefni frá Fiba Europe og mun hann dæma um næstu helgi. Þá dæmir hann leik Bretlands og Tékklands í A-deild evrópukeppni landsliða karla. Leikurinn fer fram í London í glænýju [v+]http://www.theo2.co.uk/[v-]O2[slod-] íþróttahöllinni en þar mun úrslitaleikurinn í körfubolta á Ólympíuleikunum 2012 í London fara fram. Meðdómarar Sigmundar verða þeir Vincente Bulto frá Spáni og Joseph Bissang frá Frakklandi. Bæði Tékland og Bretland eru búin að leika einn leik í A-deildinni nú í haust. Tékkar unnu góðan 14 stiga sigur á Bosníu 70-56 á heimavelli á meðan Bretar töpuðu á útivelli fyrir Ísrael 102-92. Í breska liðinu er NBA-leikmaðurinn Luol Deng sem spilar með Chicago Bulls.