3 sep. 2008Ísland tapaði í kvöld fyrir Slóveníu 69-94 eftir að staðan í hálfleik var 30-46. Íslensku stelpurnar sýndu góða takta á köflum og var jafnræði með liðunum í fyrsta leikhluta. Í stöðunni 25-25 fóru þær slóvensku í gang og skoruðu næstu 21 stigin gegn aðeins þremur frá Íslandi og staðan 28-46. Hálfleikstölur voru 30-46. Í seinni hálfleik náði Ísland að minnka muninn og í fjórða leikhluta fengu þær tækifæri til að fara með muninn niður fyrir 10 stig. Sú tilraun tókst ekki og Slóvenía jók muninn á ný. Þrátt fyrir tap voru þær íslensku að spila ágætlega á köflum og var sigur Slóveníu helst til of stór og segja ekki alveg um gang leiksins. Stigahæst hjá Íslandi var Helena Sverrisdóttir með 18 stig, 12 fráköst og 9 stoðsendingar. Næst henni kom Signý Hermannsdóttir með 11 stig og 9 fráköst. Önnur úrslit í riðlinum voru að Holland vann Svartfjallaland á útivelli 68-63 og Írland vann Sviss 79-65. Næsti leikur Íslands er gegn Írlandi á laugardag.