3 sep. 2008Eftir leik Íslands og Slóveníu sem fram fer á Ásvöllum í kvöld klukkan 19:15 munu íslensku landsliðsstelpurnar gefa og árita plaköt eins og eftir síðasta heimaleik. Það var mikill fjöldi sem fékk áritað plakat að gjöf frá landsliðsstelpunum eftir leikinn gegn Sviss sl. miðvikudag og mæltist þetta vel fyrir. Stelpurnar skora á allar stelpur sem æfa körfu að mæta á leikinn og taka mömmu og pabba með. Fá svo tækifæri á því að hitta á landsliðsstelpurnar eftir leik og fá árituð plaköt. Sigur í kvöld gefur íslenska liðinu byr í seglin fyrir framhaldið og því væri það mikils virði að fá góðan stuðning. Sjáumst á Ásvöllum í kvöld Áfram Ísland