3 sep. 2008Það er útlit fyrir hörkuleik í kvöld þegar kvennalandsliðið okkar mætir því slóvenska að Ásvöllum í kvöld kl 19:15. Slóvenía er fyrrum A-þjóð en hefur tapað tveimur fyrstu leikjum sínum í keppninni þannig að þær eiga eftir að mæta ákveðnar til leiks. Í kvöld eru 3 nýliðar í hópnum en þær Guðrún Ámundadóttir, Fanney Guðmundsdóttir og Jóhanna Sveinsdóttir eru í hópnum í fyrsta sinn í kvöld. Við hvetjum alla til að mæta og styðja við bakið á stelpunum. Miðaverð er 1.000 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir 16 ára og yngri og er selt inn við innganginn í kvöld. Liðið er þannig skipað: Nr. Nafn Hæð Lið 4 Signý Hermannsdóttir 1.86 Valur Miðherji – f.1979 5 Petúnella Skúladóttir 1.78 Grindavík Framherji – f.1985 6 Ragna Margrét Brynjarsdóttir 1.89 Haukar Miðherji – f.1990 7 Guðrún Ámundadóttir 1.77 KR Bakvörður – f.1987 8 Fanney Guðmundsdóttir 1.80 Hamar Miðherji – f.1989 9 Jóhanna Sveinsdóttir 1.79 Hamar Bakvörður – f.1989 10 Hildur Sigurðardóttir 1.72 KR Bakvörður – f.1981 11 Pálina Gunnlaugsdóttir 1.70 Keflavík Bakvörður – f.1987 12 Sigrún Ámundadóttir 1.80 KR Framherji – f.1988 13 Kristrún Sigurjónsdóttir 1.77 Haukar Framherji – f.1985 14 Helena Sverrisdóttir 1.85 TCU / Haukar Bakvörður – f.1988 15 María Ben Erlingsdóttir 1.86 UTPA / Keflavík Miðherji – f.1988 Þjálfari: Ágúst Sigurður Björgvinsson Aðstoðarþjálfari: Finnur Stefánsson Sjúkraþjálfari: Björg Hafsteinsdóttir