2 sep. 2008Slóvenska kvennalandsliðið kom til Íslands strax eftir leik þess við Írland á laugardaginn en liðið spilar við það íslenska á Ásvöllum klukkan 19.15 á miðvikudaginn. Þær hafa dvalið hérna síðan á sunnudaginn og verða því á landinu tveimur heilum dögum lengur en það svissneska gerði hér um daginn. Íslensku stelpurnar, sem léku við Holland í Almere á laugardaginn, komu hinsvegar ekki til landsins fyrr en seint á sunnudagskvöld og slóvenska liðið kom því á undan því íslenska til landsins. Líklega er þetta gert til að minnka ferðalög og að það hafi hentað þeim betur að koma frá Írlandi í stað þess að fara heim og þurfa svo að fara aftur af stað ti Íslands nokkrum dögum síðar. Slóvenía er fyrrum A-þjóð en féll úr deildinni í síðustu keppni. Liðið hefur ekki byrjað vel að þessu sinni og tapað báðum leikjum sínum, fyrst á móti Hollandi á heimavelli og svo á móti Írum í Dublin á laugardaginn. Við hvetjum alla til að koma á leikinn og styðja stelpurnar til sigurs en sigur gegn Slóveníu kemur íslenska liðinu í góða stöðu í riðlinum. Miðaverð er 1.000 kr. fyrir fullorðna og 500 fyrir börn yngri en 16 ára.