2 sep. 2008Tvö æfingamót fara fram í Reykjanesbæ um helgina í tengslum við hátíðina Ljósanótt. Í Toyota-Höllinni verður fjögurra liða mót í karlaflokki og svo verður hraðmót í meistaraflokki kvenna sem fer fram í íþróttahúsi Keilis á Vallarheiði. Mótið í Keflavík hefst fimmtudaginn 4. september en ásamt gestgjöfunum í Keflavík verða einnig Njarðvík, KR og Grindavík í mótinu. Opnunarleikur mótsins er viðureign KR og Grindavíkur sem hefst kl. 18:00. Leikið verður um sæti á föstudeginum. Hægt er að sjá dagskrá mótsins [v+]http://www.keflavik.is/Karfan/Frettir/default.aspx?path=/resources/Controls/8.ascx&C=ConnectionString&Q=Top%205%20News%20Karfa&Groups=1&ID=5186&Prefix=152/[v-]hér[slod-]. Aðgangur að mótinu er ókeypis og í boði Reykjanesbæjar. Keppt á Vallarheiði Á föstudag hefst hraðmót sem kvennaráð Kkd. UMFN og Góður Kostur ehf. standa fyrir og fer það fram dagana 5.-6.september. Leikið verður í íþróttahúsi Keilis á Vallarheiði og hefst mótið kl. 17:00 á föstudeginum með leik Grindavíkur og Keflavíkur. Einnig eru í mótinu gestgjafarnir í Njarðvík ásamt Haukum, Fjölni, Val og KR. Hægt er að sjá dagskrá mótsins [v+]http://www.umfn.is/Korfubolti/frettir/2327/default.aspx[v-]hér[slod-] og það kostar ekkert inná mótið.