30 ágú. 2008Það verður stór dagur hjá Signýju Hermannsdóttur, fyrirliða kvennalandsliðsins, þegar stelpurnar mæta Hollandi í dag. Þetta er annar leikur íslenska liðsins í b-deild Evrópukeppninnar sem hófst með sigri á Sviss á miðvikudaginn. Signý mun þar spila sinn fimmtugasta A-landsleik fyrir Íslands hönd og um leið bæta met Önnu Maríu Sveinsdóttur yfir flesta leiki sem fyrirliði A-landsliðs kvenna. Signý jafnaði metið í leiknum á móti Sviss en leikurinn á móti Hollandi verður 18. landsleikurinn þar sem Signý er fyrirliði liðsins. Signý verður sjöunda landsliðskonan sem nær því að leika 50 A-landsleiki fyrir Íslands hönd en það eru liðin átta ár síðan Anna María Sveinsdóttir braut fyrst 50 landsleikjamúrinn í Lúxemborg 30. apríl 2000. Guðbjörg Norðfjörð fylgdi síðan í kjölfarið rúmum tveimur árum síðan og síðan hafa fjórar konur bæst í hópinn. Hildur Sigurðardóttir var síðust á undan Signýju til þess að spila 50 landsleiki en Hildur náði því takmarki síðasta haust og það var einmitt líka í leik á móti einmitt Hollandi. Hildur er með landsliðinu núna og mun spila sinn 58. landsleik á móti Hollandi á morgun. Tímamótalandsleikir Signýjar Hermannsdóttur 1999-2008: 1. leikur ... á móti Lúxemborg í Lúxemborg 7.maí 1999 (3 stig) 10. leikur ... á móti Albaníu í Andorra 20. júní 2002 (2 stig) 20. leikur ... á móti Englandi í Grindavík 29. maí 2004 (16 stig) 25. leikur ... á móti Möltu í Andorra 30. júlí 2004 (10 stig) 30. leikur ... á móti Finnlandi í Arvika 14. ágúst 2004 (10 stig) 40. leikur ... á móti Noregi í Keflavík 16. september 2006 (7 stig) 50. leikur ... á móti Hollandi í Almere 30. ágúst 2008 (???) Landsliðskonur með 50 A-landsleiki fyrir Ísland: Birna Valgarðsdóttir 68 leikir - lék sinn 50. landsleik á móti Andorra í Andorra 28. júlí 2004. Birna skoraði 27 stig í leiknum. Anna María Sveinsdóttir 60 leikir - lék sinn 50. landsleik á móti Lúxemborg í Lúxemborg 30. apríl 2000. Anna María skoraði 19 stig í leiknum og var fyrirliði íslenska liðsins. Hildur Sigurðardóttir 57 leikir - lék sinn 50. landsleik á móti Hollandi á Ásvöllum 1. september 2007. Hildur skoraði 11 stig í leiknum. Helga Þorvaldsdóttir 53 leikir - lék sinn 50. landsleik á móti Englandi í Smáranum 21. maí 2005. Helga skoraði 8 stig í leiknum. Guðbjörg Norðfjörð 53 leikir - lék sinn 50. landsleik á móti Möltu í Andorra 19. júní 2002. Guðbjörg skoraði 5 stig í leiknum og var fyrirliði íslenska liðsins. Alda Leif Jónsdóttir 52 leikir - lék sinn 50. landsleik á móti Andorra í Andorra 31. maí 2005. Alda Leif skoraði 8 stig í leiknum. Flestir leikir sem fyrirliði A-landsliðs kvenna: Signý Hermannsdóttir 17 Anna María Sveinsdóttir 17 Erla Þorsteinsdóttir 14 Guðbjörg Norðfjörð 13 Björg Hafsteinsdóttir 11 Vigdís Þórisdóttir 9 María Jóhannesdóttir 8