30 ágú. 2008Íslenska kvennalandsliðið mætir því hollenska í fimmta sinn þegar liðið spila í Evrópukeppnini í Almere í Hollandi í dag. Liðin dógust aftur saman í riðil í þessarri keppni eftir að hafa hafa spilað saman í riðli í Evrópukeppninni sem var spiluð 2006 til 2007. Þetta er annar leikur Íslands í Hollandi en sá fyrri fór fram í Rotterdam fyrir tveimur árum síðan. Hildur Sigurðardóttir er eini íslenski leikmaðurinn sem hefur verið með í öllum fjórum leikjunum á móti Hollendingum en Hildur spilar sinn fimmta landsleik á móti Hollandi í dag. Þær Birna Valgarðsdóttir og Signý Hermannsdóttir hafa síðan báðar leikið 3 af 4 leikjum Íslands á móti Hollandi. Signý mun bæta þeim fjórða við í dag. Ísland hefur einu sinni spilað við Holland á útivelli en sá leikur var í síðustu Evrópukeppni og fór fram í Rotterdam 9.september 2006. Sjö leikmenn íslenska liðsins í dag voru með í leiknum fyrir tveimur árum en það voru þær: Helena Sverrisdóttir (25 stig í leiknum), Signý Hermannsdóttir (8), Kristrún Sigurjónsdóttir (8), Hildur Sigurðardóttir (2), María Ben Erlingsdóttir (2), Jovana Lilja Stefánsdóttir og Pálína Gunnlaugsdóttir. Landsleikir Íslands og Hollands frá upphafi: 8. maí 1999 Ísland*-Holland 53- 4. maí 2001 Ísland*-Holland 51- 9. september 2006 Holland-Ísland 66-61 1. september 2007 Ísland-Holland 52-73 * Æfingamót í Lúxemborg Leikirnir við Holland í síðustu Evrópukeppni: 9. september 2006 í Rotterdam Holland-Ísland 66-61 (10-16, 21-17, 18-20, 17-8) Flest stig: Helena Sverrrisdóttir 25, Birna Valgarðsdóttir 16, Signý Hermannsdóttir 8, Kristrún Sigurjónsdóttir 8 Flest fráköst: Signý 11, Helena 8, Pálína Gunnlaugsdóttir 5 Flestar stoðsendingar: Pálína 4, Helena 3, Kristrún 2, Birna 2, Margrét Kara Sturludóttir 2 Hæsta framlag: Signý 22, Kristrún 12, Helena 11 1. september 2007 á Ásvöllum Ísland-Holland 52-73 (11-21, 9-15, 16-13, 16-24) Flest stig: Helena 12, Hildur Sigurðardóttir 11, Signý 9 Flest fráköst: Signý 8, Margrét Kara 6, Hildur 5 Flestar stoðsendingar: Helena 4, Svava Ósk Stefánsdóttir 3 Hæsta framlag: Helena 9, Signý 9, Svava Ósk 8